VÉLAVAL-Varmahlíðhf
   “DRAGGLUGGAR” í nýju íslensku fjósi.

 Tilvalin loftinntök fyrir náttúrulega loftræstingu.


Gluggarnir hér að ofan hafa í sér vindtefjandi net (90% vindtöf).  Þrefalt pólýkarbónat plastgler er dregið fyrir gluggana með vindu til að loka ef veður verða válynd.

Ein mistök virðast hafa verið gerð þarna: gluggaopin hefðu átt að vera uppi við þakbrúnina þannig að uppdraganlegu plastglerin væru í biðstöðu fyrir neðan gluggaopin.

Þessa glugga er hægt að fá í hvaða lengdum og breiddum sem er.  Handvinduna er hægt að fá með rafmótor hvort sem hann er tengdur sjálfvirkri "veðurstofu" eða ekki.
 
 

Aðalsíða