VÉLAVAL-Varmahlíðhf
Interclamp röratengi og festingar
 

Hönnun og hráefni

Interclamp er alhliða framleiðsla á röratengjum gerðum úr galvaniseruðu pottjárni til ótölulegra nota.  Hönnuð til að geta reist fljótlega og auðveldlega traust mannvirki allskonar nánast án allra verkfær nema sexkantlykil, þegar búið er að skera rörin í sínar réttu stærðir.  Þá eru menn lausir við rafsuðu og því auðvelt að taka viðkomandi mannvirki niður seinna ef óskað er t.d. til að flytja það úr stað.  Aðalatriðið er að hér þarf ekki sérfræðing í rafsuðu til að vinna verkið.

Stærðir

Fimm mismundandi stærðir passa í Interclamp tengin eins og sýnt er hér í töflunni.

Tegundanúmerin eru eyrnamerkt með stærðarnöfnunum, t.d. 125-D48 þýðir að hné nr. 125 er af stærð fyrir 1 1/2" tommu rör sem er 48,3 mm að utanmáli.  Tegundir af tengjum er hægt að sjá á heimasíðu Interclamp

Nokkrir notkunar möguleikar

Handrið og öryggishandrið s.s.

Svalahandrið og stigahandrið.

Girðingar og öryggisgirðingar

Leiktæki á barnaleikvöllum

Mjaltabásar

Hestagerði og hesta-hringgerði

Sýningarhillur og innréttingar í verslanir

Dyra- og bílastæðisskyggni

Varnargrindur í kringum vélasamsstaður o.fl. o.fl.

 

 
Aðalsíða