Bovi Magnesium Paste
Inniheldur ríkulegt magn af magnesíum, ætlað til að minnka líkur á krampadoða.
Kúabændur hafa tekið eftir að frumutala kúa lækkar þegar kalksalt með hvítlauk er gefið og fitan hækkar. Hestamenn hafa einnig verið hrifnir af hvítlauknum því hann er góður fyrir feld hrossanna og meltingu.
Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum og hefur dregið í sig snefilefni úr fisknum. Inniheldur kalkþörunga, melassa, magnesíum, A, D3 og E vítamín og Selen (E8) 20mg/kg.
Curavit er náttúrulegt skituduft fyrir kálfa. Hentar bæði sem fyrirbyggjandi sem og fyrir kálfa sem fengið hafa skitu. Efni í fóðrinu vinna gegn niðurgangi og koma einnig á stöðugleika á jafnvægi vatns- og jónaefna.
Til blöndunar bæði í mjólk og vatn allt eftir ástandi kálfsins.
Curavit fæst í 5kg. fötum.
Notkun á Propylen glycol í lok geldstöðu og á fyrrihluta mjaltaskeiðs skilar sér í betra heilsufari og meiri mjólkurframleiðslu, sérstaklega á fyrstu 50 dögum mjaltaskeiðs. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að notkun á Propylen glycol lækkar gildi „ketons“ í blóði og minnkar gildi „scintons“ í mjólk ásamt því að sýrustig í blóði lækkar. Eldri kýr bregðast betur við Propylen glycol gjöf heldur en yngri kýr.
Propylen Glycol fæst í 20L brúsum.
Lýsi þarf vart að kynna fyrir bændum. Við mælum sérstaklega með lýsissteini á fengitíma.
Auk lýsis Inniheldur fatan kalkþörunga, melassa, magnesíum, A, D3 og E vítamín og Selen (E8) 20mg/kg
Pasta sem örvar vambarstarfsemi og eykur matarlyst. Inniheldur selen og kalk til að minnka líkur á truflunum á vambarstarfsemi.
Hjálpar til við að koma jafnvægi á vambarstarfsemi og gerir vambarumhverfið hagstæðara fyrir örflóru vambarinnar. Hjálpar til við að vinna gegn lágum glúkósa og kalki í blóði.
Inniheldur einnig selen, járn og zink.
Kalkinnihaldið minnkar líkur á doða og hátt hlutfall af glúkósamyndandi efnum minnkar líkur á súrdoða.
Má einnig gefa kálfum eftir að þeir eru teknir af mjólk.
Orkuríkt pasta með hátt innihald af glúkósamyndandi efnum, sem að eiga þátt í að bæta upp lágan blóðsykur og þarmeð súrdoða. Inniheldur að auki kalk og selen. Níasín getur minnkað líkur á fitulifur og súrdoða. Bovi KetosePlus Pasta er bragðgott og getur örvað gróffóðursát eftir burð og styðja þannig við hraða endurkomu gangmáls
Orkupasta ríkt af kalki, fosfór og seleni, minnkar líkur á langliggjandi kúm
Inniheldur glúkósamyndandi efni og kalk til að minnka líkur á súrdoða og doða. Hver túpa inniheldur 42gr af fosfór og 30gr af kalki.
Kolpasta: Bovi Carbon Pasta Kolpasta með tanníni, Jafnar maga- og þarmastarfsemi á dýrum með truflanir í meltingervegi og minnkar líkur á myndun.
Aðstoðar við að viðhalda heilbrigðri meltingarstarfsemi, örvar meltingu og bindur eiturefni frá bakteríum og sveppum.
Tannín ásamt karbóvetnuðum kolum aðstoðar við að hægja á og þykkja hægðir.
Kalksaltsteinn er íslenskur saltsteinn fyrir búfénað, framleiddur úr endurnýttu salti úr fiskvinnslu og hafkalki úr Arnarfirði auk þess að vera A- ,D-, E-vítamín- og selenbættur. Passar í saltsteinahaldara.
Josilac úðadæluna er hægt að nota á sjálfhleðsluvagninn, rúlluvélina og stórbaggavélina. Hún er einföld í notkun og uppsetningu.
Hvítlaukssteinninn er afar vinsæll hjá kúa- og fjárbændum. Kúabændur hafa séð marktækan mun á efnainnihaldi mjólkur þegar kalksalt er gefið
Rannsóknir hafa leitt í ljós að 60% af kúm hafa of lágt kalsíumhlutfall (hypo-calcaemia). Þessi kalsíumskortur stafar af því að við framleiðslu á broddmjólk þarf kýrin mun meira kalsíum en hún fær í daglegu fóðri og/eða getur nýtt úr beinum.
Því eldri sem kýrin er því hættari er henni við að fá kalsíumskort við burð.
MS Calmag Plus fæst í 5L brúsum.