Asyntho 5W-30 er nútíma, alhliða, eldsneytissparandi fully-syntehtic long life mótorolía með viðbættum bætiefnum til að ná fram eftirfarandi eiginleikum.
Hitaþolið feiti ætluð í legur og fl. Feitið er úr háþróuðu litíumkomplex grunnefni sem er efnabætt með EP bæti-efnum sem hindra slit við þrýsting og höggálag. Feitið heldur eiginleikum sínum vel við háan hita veitir góða vörn. Alhliða smurfeiti fyrir kúlu og keflalegur, liði og fóðringar.
Tvígengisvélaolía fyrir mótorhjól og flestar gerðir annara tvígengisvéla. Blossamark: 110°C. Rennslismark: -24°C. Seigja mm²/sek. 40°C/100°C: 55/8,8. Gæðaflokkanir: API: TC, JASO: FC, ISO: E-GC, TISI. Fæst í 1 ltr. umbúðum. Vörunr. 3020 456221
Alsyntetísk mótorolía sem er þróuð til þess að veita framúrskarandi afköst við langflest skilyrði. Efnasamsetning olíunnar er á þann veg að hún veitir vernd sem hægt er að treysta fram yfir það sem hálfsyntetískar og míneralskar olíur geta veitt. Þessi olía á sérstaklega við ef oft er ekið við krefjandi aðstæður. Við þau skilyrði getur Mobil 3000 spornað gegn skemmdum sem orsakast ef vélin er oft látin starfa undir miklu álagi. Syntetísk olía fyrir bensín- og díselvélar í fólks- og sendibílum. Fæst í 1,4,20 og 208 lítra umbúðum.
Gírolía fyrir mismunadrif og gírkassa í ýmsum bílum Blossamark: 202°C. Rennslismark: -30°C. Seigja mm²/sek. 40°C/100°C: 136/14,5. Seigjustuðull: 105. Gæðaflokkanir: API: GL-5. Fæst í 1, 4, 20 og 208 l umbúðum. Vörunr. 3020 423814, 706 4238120, 706 42381208.